Fasteignaþróun
Lóðir og byggingaframkvæmdir Smáragarðs. Hér sýnum við verkefni sem eru í hönnun, byggingu eða á leið í útleigu.
Í byggingu og þróun
Í bygginguStraumhella 1-3
Erum með í byggingu á Straumhellu 1-3 stálgrindarhús sem hægt er að skipta upp í þrjú sjálfstæð leigubil. Afhending áætluð á fyrri hluta árs 2028.
Í þróunVíkurbraut 14
Húsnæðið er í eigu Hólf og gólf ehf. sem er systurfélag Smáragarð. Í húsnæðinu er Samherji Laxeldi með starfsstöð en nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir íbúðabyggð á þessum reit.
Í þróunDverghella og Jötnahella
Smáragarður er með 8 lóðir við Dverghellu 5-11 og Jötnahellu 6-12 til þróunar. Möguleiki er á að sameina lóðir í heild eða hluta eftir því hvað hentar leigutökum.
Áratuga reynsla af uppbyggingu atvinnuhúsnæðis.
Starfsmenn Smáragarðs hafa mikla reynslu á sviði byggingaframkvæmda og rekstri fasteigna. Undanfarin ár hefur fyrirtækið staðið fyrir viðamikilli uppbyggingu atvinnuhúsnæðis víða um landið.
Auk þess á Smáragarður í nánu samstarfi við margar af stærstu arkitekta- og verkfræðistofum landsins.
Uppbygging í gegnum tíðina
Valin þróunarverkefni sem Smáragarður hefur reist og byggt upp um land allt.
BYKO & Intersport
Stórt verslunarhús reist undir starfsemi BYKO og Intersport.
Kauptún
Verslunarhús sem áður hýsti BYKO, breytt fyrir Toyota sem er nú með alla starfsemi sína þar.
Grandi
Verslunarhús byggt fyrir BYKO, ELKO og Krónuna út á Granda.
Bakkinn — vöruhótel
Vöruhótel sem hýsir lagera fyrir BYKO, ELKO, Kaupás og fleiri fyrirtæki.
Vallakór
Nýtt verslunar- og skrifstofuhús byggt við Vallakór.
Miðhraun
Verslunar- og iðnaðarhús að Miðhrauni.
Dalbraut
Uppbyggður verslunarkjarni við Dalbraut.
Háholt
Uppbyggður verslunarkjarni við Háholt.
Molinn
Uppbyggður verslunarkjarni, Molinn.
