Um Smáragarð
Fasteignafélag með rætur í uppbyggingu frá árinu 2002. Traustur eigandi með langa og farsæla rekstrarsögu.
Saga Smáragarðs
Upphaf fyrirtækisins sem fasteignafélags má rekja til ársins 2002 þegar fasteignir BYKO voru teknar út úr rekstri BYKO og settar í sér félag, Smáragarð. Norvik keypti Kaupás árið 2003 og voru eignir Kaupáss teknar yfir af Smáragarði.
Undanfarin ár hefur fyrirtækið staðið fyrir viðamikilli uppbyggingu atvinnuhúsnæðis víða um landið. Byggt var stórt verslunarhús undir starfsemi BYKO og Intersport á Akureyri, og stórt verslunarhús í Kauptúni í Garðabæ, sem áður hýsti verslun BYKO en var breytt fyrir Toyota sem nú er með alla starfsemi sína þar.
Einnig hefur verið byggt verslunarhús fyrir BYKO, ELKO og Krónuna út á Granda, auk þess sem Smáragarður byggði Bakkann, vöruhótel við Skarfagarða í Reykjavíkurhöfn sem hýsir lagera fyrir BYKO, ELKO, Kaupás og fleiri fyrirtæki.
Nýtt verslunar- og skrifstofuhús var byggt við Vallakór í Kópavogi, auk verslunar- og iðnaðarhúss að Miðhrauni í Garðabæ. Þá hafa verið byggðir upp verslunarkjarnar við Dalbraut á Akranesi, Háholt í Mosfellsbæ og Molinn á Reyðarfirði.
Árið 2013 seldi Smáragarður um 100.000 m² af húsnæði sínu og í dag á Smáragarður um 85.000 m² af atvinnuhúsnæði.
Fagleg þekking
Starfsmenn Smáragarðs hafa mikla reynslu á sviði byggingaframkvæmda og rekstri fasteigna. Auk þess á félagið í nánu samstarfi við margar af stærstu arkitekta- og verkfræðistofum landsins.
Eignarhald
Smáragarður er dótturfélag Norvik hf., eignarhaldsfélags í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu.
Stjórn Smáragarðs
Stjórn Smáragarðs er skipuð Guðmundi H. Jónssyni stjórnarformanni, Jóni Helga Guðmundssyni og Hörpu Vífilsdóttur.
Starfsfólk Smáragarðs





